Tan-Freaks

Yes we are friggin tanned freaks

07.08.2009 18:20:00 / erna

Topp 5

Loksins hefur mér tekist að fá niðurstöðuna. Ferlið hefur verið langt og strangt. Mikið hefur verið um vangaveltur, en útkomann er komin. Gjöriði svo vel og njótið.

1. Ingvar E. Sigurðsson
Frábær leikari og algjört sjarmatröll.


2. Ólafur Stefánsson
Sniðugur Íþróttakappi sem við getum verið stolt af



3. Guðjón Valur Sigurðsson
Myndin segir allt



4. Magnús Lárusson
Hrikalega myndarlegur og stórgóður golfari



5.
Sigmar Vilhjálmsson
Fyndinn, kúrulegur og frábær




Jíha.
Segiði svo að ég sé fyrirsjáanleg.

Out Peeps!


» 10 hafa sagt sína skoðun

29.07.2009 12:02:02 / árný

Eyjar

Jæja, núna er stæsta ferðamannahelgin ársins að ganga í garð og eiginlega allir vinir mínir eru að fara á Þjóðhátíð í eyjum og ekki laust við að ég sé öfundsjúk. Ég verð heima að vinna á Skjóli, fyrir gamla fólkið sem veit ekki og hefur ekki hugmynd um hverju ég er að fórna til að vera með því. Vanþakklæti!!

En þar sem ég kemst ekki þá var ég að spá í að setja upp smá lista yfir hluti sem gætu komið sér vel í útileigunni, svona fyrir þá sem hafa aldrei farið. (ég lærði smá af mistökunum í fyrra).

núúúúúmer 1:

Tjaldstóll


Já passið að það sé Bjór halda því að það er besta uppfinning fyrr og síðar í útileigustólabransanum. Ótrúlega böggandi að vilja leggja bjórinn frá sér og það er ekkert borð og enginn GLASAHALDARI!!

2. tjald.
frekar nauðsynlegt ef þú ætlar að sofa, en þú gætir samt alveg crashað hjá vini þínum eða vinkonu.

3. svefnpoki
4. hlý föt
5. Indjánapeysa


5. pollagalli

PS: það er mjög ódýrt að fá þá í láni hjá öðrum og gleyma svo að skila þeim................................................... ehehehehehhehehe

6. bjór og annað vín

síðan er auðvitað kreppa og vínið dýrt og þá hafa´margir ákveðið að fara þá leið að kaupa sér landa.................................................. ódýrt og rosa gott.................

7.Smokkar

Því ég las í fréttablaðinu að rómantíkin væri ansi mikil á Þjóðhátíð.



En elskurnar mínar. Það er hægt að kaupa mat í Vestmanneyjum svo takið bara nóg af pening með ykkur. Munið svo að hringja reglulega í mig með slúðurpakka og ég segi Góðaskemmtun!!!

Ást og friður,
Árný
ps: Erna ég treysti á þig að dansa fyrir okkur ´Báðar á Sálar ballinu


» 8 hafa sagt sína skoðun

22.07.2009 23:21:16 / árný

pungar

Mér finnst oftast mjög gaman að fá mér einn, tvo, þrjá bjóra. Oftast fæ ég mér samt fjóra. Það er þekkt staðreynd að vín fer misvel í fólk og sagt er að persónuleikinn breytist, sem er alveg satt því fólk verður tilfinningaríkara, opnara og opinskárra, hressara og skemmtilegra. Svona yfirleitt. Síðan er auðvitað til fólk sem verður hundleiðilegt, árásargjarnt og fer svo að grenja. En svona erum við öll ólík með meðferð áfengis. Öll getum við þó verið sammála um að ef farið er yfir ákveðna línu, í Ernu tilviki tveir bjórar, þá verður fólk ofurölvi og engum finnst það gaman, og fylgifiskur ofurölvunnar er yfirleitt alvarlega mikill höfuðverkur, minnisleysi og bömmer yfir einhverju sem gert var undir áhrifum.

Ástæðan fyrir því að ég skrifa svona er ekki sú að ég telji mig eitthvað sérstaklega eiga við áfengisvandamál að stríða (hóst Erna), ó nei, heldur brá mér heldur betur í brún þegar góðvinkona mín hún Þórey Rósa benti mér á þá leiðilegu staðreynd að þegar ég er búin að drekka nokkra bjóra verð ég TILEYGÐ.´Já þið lásuð rétt. Annað augað minnkar töluvert. Auðvitað sagði ég henni að þetta væri kjaftæði, en hún sagði að hún sæi það bara þar sem við stæðum og ég hljóp, í uppnámi, inn á bað og athugaði málið. Við nánari skoðun af djamm myndum af mér á facebook, komst ég að´því að stelpan hefur aldeilis hitt naglann á höfuðið......

 

Myndir segja meira en þúsund orð:

 













I
rest
my
case


jii, það fer mer bara ekki að drekka ;)
kv Árný fráfarandi auga í pung kona


» 8 hafa sagt sína skoðun

17.07.2009 23:12:07 / árný

topp 5

Ég var að koma heim. Ég var að hjálpa Ernu að passa. Eða réttara sagt, ég náði í pizzuna.
Planið var að horfa á Harry Potter og fönixregluna, en þegar okkur fór að leiðast hinn galdrandi P(l)otter þá fórum við í leik. Leikurinn er mjög skemmtilegur, en hann felur í sér að við skiptumst á að vera á Facebook og skoða allar sætu og mjóu stelpurnar, með fallegt hár, sem við þekkjum og börmum okkur yfir hliðarspiki og bingóivöðvum. Þennan leik lékum við í ca. 2 klukkutíma, þegar við urðum að hætta því fólkið sem Erna var að passa fyrir kom heim.
Ég skutlaði Ernu heim og þegar við erum komnar fyrir utan Flúðaselið þá segi ég við Ernu: Hvaða 3 fræga íslenska menn myndir þú velja til að eiga rómantísku ástarsambandi við?
Erna tók sér sinn tíma og komu niðurstöðurnar ekki á óvart, enda er Erna frekar lesin þegar kemur að heitum náungum, en hún mun birta sinn lista annað hvort í kvöld eða á morgun. Minn listi er hinsvegar eftirfarandi.


TOPP 5
-frægir íslenskir menn til að eiga í rómantísku sambandi við-

1. Hilmir Snær



2. Baltasar Kormákur



3. Björn Hlynur



4. Þorvaldur Davíð



5. Frosti í Mínus





eins og glöggir hafa kannski tekið eftir eru þetta allt listamenn, en þeir höfða mjög mikið til mín, því eins og málshátturinn segir: LÍKUR SÆKIR LÍKAN HEIM og já ég er að vísa í það hversu fáranlega hæfileikarík ég er á sviði lista.

Íþróttamönnum verða gerð skil síðar, enda er ég líka mikill íþróttamaður.


Ást og friður,
ykkar einlæg,
Árný Rut Jónsdóttir

PS: vill einhver hér að ofan byrja með mér. Ef þið eruð of hræddir við að segja þetta á blogginu þá megiði adda mér á msn, arnyrut@btnet.is og við getum skiptst á myndum og ákveðið stefnumót.
PS2: mér er alveg sama þó þið séuð nú þegar í föstu sambandi, ég sætti mig alveg við að vera hin konan.


» 9 hafa sagt sína skoðun

17.07.2009 16:30:44 / erna

dAUÐÐðði

Ég átti glataðann dag.

Vaknaði of seint-var að keyra vörur út í miðbænum og vissi ekki hvar einn einasti staður var- ógeðsleg þungir kassar- klemmdi puttann á trillunni og hélt að hann hefði farið af-grét smá yfir puttanum-sein með sendingar-sein með fyrri póstferðina og annað fjör.

Svo var ég ógeðslega sveitt og ljót (því að maður er ljótur þegar maður svitnar) vegna hitans sem var úti og inni í bíl.

Það besta við daginn var þegar ég fékk að fara heim úr vinnunni. Það var gott. Svo er ég að fara að passa, svo það er ekkert chill fyrir mig. Svo langar mig líka að fara í SIMS, en ég finn ekki minn disk og Jónas er lélegur að download-a.

Mig langar líka að fara í útileigu en það er ekki hægt heldur. *grát*

Þori ekki út á pall að baða mig í sólinni, miðað við heppni dagsins þá myndi ég brenna við að setjast út.

Viskubrunnur out




» 7 hafa sagt sína skoðun

08.07.2009 23:43:44 / erna

Yes, I'm gonna live forever...

Já, það er satt. Við erum mættar aftur, og núna af alvöru. Enda er sko tilefni til, því að við fríkin erum að fara að skella okkur til Spánar. Oje, me and Árný, just sitting by the pool, studying spanish with beer in one hand and the tennis racket in the other one! Vúbbídú.Svo núna verður maður bara að þræla sér út í vinnu áður en maður hendir sér af stað í sólina. Ég bráðna bara við að hugsa um sólina.

Þetta á nú bara að vera stutt blogg, the real deal comes soon. Bara smá öppdeit fyrir ykkur 17 dyggu aðdáendur sem að skoða síðuna daglega. (Árný fer að vísu 12 sinnum inná, svo að við eigum kannski 5 alvöru aðdáendur.)

Love is in the heart
Júdas


» 11 hafa sagt sína skoðun

16.04.2009 20:28:26 / árný

all my single ladies.

All the Singel ladies!! Afhverju eru vinkonur okkar sem eru á föstu svona ágengar á að koma okkur í samband?

Í gær var ég í rólegheitum að horfa á Americas next top model og þá fór síminn minn að víbra. SMS frá vinkonu minni, sem er með kall, barn íbúð og bíl. Hún sendi mér sms sem var svo hljóðandi:

 

Má ég láta Bjössa hafa númerið þitt? Mannstu þið voruð að „deita“ í 9. bekk eða e-ð.

 

Ég skellti upp úr og hringdi samstundis í hana, svona nokkuð krefst útskýringa.

Ég spurði hana hvað hún hefði meint og í sakleysi sínu fór hún að rekja söguna frá A til B.

Vinkona: „Bjössi er að vinna í 10-11 sem ég fer alltaf í og ég þykist aldrei þekkja hann. En áðan þá var ég með barnið, kerruna og fullt af mat og ég missi tökin á þessu öllu saman og hann kemur mér til bjargar. Frekar vandræðalegt þegar hann spyr mig hvort hann þekki sig ekki. Ég lýg og segi nei. Þá segir hann ég þekki Árnýju og Jóa úr Breiðholtinu..... Með þvílíkum leiklistarhæfileikum muldraði ég jaáááááá kannast eitthvað við þig núna. Vandræðaleg þögn og hann þurfti að fara aðstoða næsta viðskiptavin. Árný ég er að segja þér það hann er orðin miklu sætari en hann var þegar hann var yngri. Má ég ekki láta hann hafa númerið þitt??“

Ég...... : Þannig að hann bað þig ekki um númerið mitt?

Vinkona: Nei..... ekki beint...

Ég: ertu eitthvað biluð?

Vinkona: nei hehehehehe

Ég: hvernig hafðiru hugsað þér að láta hann hafa númerið? Ætlaru aftur í 10/11 og láta hann hafa númerið??

Vinkona: ég ætla ekkert að labba upp að honum og láta hann hafa númerið þitt beint! Ég spjalla aðeins við hann fyrst....

Ég: uu nei takk samt.... ég þarf að fara..... bæææææææææææ

 

 já svona er farið fyrir okkur einhleypingunum...

þangað til síðar
Barry Cradshaw


» 10 hafa sagt sína skoðun

23.12.2008 15:29:31 / árný

fimmtíuþúsund heimsókna múrinn rofinn!!!

já, seint hélt ég að þessi dagur myndi koma!! Tan-freaks sem byrjað sem gelgjublogg árið 2005 hefur aldeilis "meikað" það. Tilvljun réði því að ég heimsótti mína eigin heimasíðu í dag, Þorláksmessu, og sá að 50.003 gestir hefðu heimsótt síðuna. Fannst það ærið tilefni fyrir nokkur orð.

Ef heimsóknirnar eru settar upp í hlutfallslegar heimsóknir á mann þá skiptast þær svona niður:

Árný: 10%
Erna: 15% (hún er ekki með netið núna og því dettur hún úr 20% frá nóvember síðast liðnum)
Dagmar: 25%
Dísa (mamma Ernu): 10%
Amma Ernu, mamma Dísu: 18%
Amma Árnýjar: 4% (hún fékk póstkort frá Köben sem benti á síðuna, hef heyrt útundan mér að hún stundi síðuna grimmt síðan í júlí)
Sólveig: 8%
AÐRIR AÐDÁÐENDUR (GILLZNEGGER OG EIÐUR SMÁRI): 50%

Þetta eru upplýsingar frá Hafstofunni og skekkjumörk engin.........................

Ég finn því miður ekki jólskrautið mitt, ég er nokkuð viss um að ég hafi látið móður mína aldraða geyma það því ég finn það ekki, en ég er nú samt nokkkuð viss þó ég viðurkenni það ekki og hitt sé opinber skoðun mín á málinu, að ég hafi týnt því.
þannig að ég sit hér í hálfhreinu herbergi og ekkert jólaskraut að hlusta á Justin Timberlake. Það mætti halda að ég fílaði jólin illa. En það er ekki satt og ég kemst í stuðið um leið og ég hef klárað þessi verkefni......... en þangað til næst elskurnar. Bæbæ....

Ég vil óska lesendum síðunnar

GLEÐILEGRA JÓLA OG FARSÆLDAR Á KOMANDI ÁRI






» 6 hafa sagt sína skoðun

27.09.2008 19:33:09 / árný

ERROR 2

PS: biðst afsökunnar

» 6 hafa sagt sína skoðun

27.09.2008 19:32:38 / árný

ÉRROR

Das blonde Haar hat sie von ihrem Mutter.
Die grossen Hände hat sie von ihrem Mutter.
Die lange Nase (hahaha) hat er von seinem Vater.

Sellóbíósi er tvísykra sem er niðurbrotsefni selluósa (beðmis). Er gerð úr tveimur einingum af beta-D-dglúkópýarnósa sem eru tengdar með beta-1 til 4 glkósíðtengi.

Ég er með bólur, sem væri svo sem ekkert slæmt ef þær væru ekki á svona áberandi stað, en þær eru staðsettar einmitt milli augnanna sem gerir mig svolítið svona eins og ég sé með eina augnbrún (sem er víst ekkert hot)......


» 6 hafa sagt sína skoðun

24.09.2008 19:29:39 / árný

Erna farðu að blogga

Núna er ég svo sannarlega í fíldu skapi. Ég get ekki farið á myspace eða facebook, msn eða ebay!! ARGGGGGGGGG.. maður er háðari þessu en maður hélt!!

» 5 hafa sagt sína skoðun

25.08.2008 17:30:20 / árný

hahaha

ég er alltaf að byrja á bloggi og nenni aldrei að klára það.. það er frekar leiðilegur ávani. Ég ætla því að reyn að klára þetta blogg án þess að hætta við.. en þið gætuð samt ekki komist að því að ég hefði beilað, því að þið gætuð ekki lesið um það hahaha...

Jeg hef bara verið að chilla 70% vikunnar og vinna hin 30% síðan ég kom heim frá Koben. Ekkert að gera sun-fim og vinna fös-lau...Það stoppar mig ekki í djamminu, ónei.. ég dett bara í það í vinnunni og fyrri vikið er ég helmingi skemmtilegri og sætari..ójá.. ekki segja samt.

ég byrja í skólanum á morgun, stundataflan lítur ekki illa út.. ætti að verða bærilegt ár.

yfir og út ég nenni ekki að segja neitt meira nema helvíti góðann "brandara" sem ég bjó til..

Það er maður sem er ógeðslega massaður og flotttur og harður og Alma segir við hann: Þú ert með eitthvað framan í þér (blóðugur skurður). Þá segir hann: Vinnuslys.. þá segi ég: ERTU HANDRUKKARI........ haha

» 7 hafa sagt sína skoðun

01.08.2008 17:11:07 / árný

ég er að fara til eyja

sit hérna inni í herberginu hennar Dagmarar og við erum að bíða eftir því klukkan verði nógu margt til að þess að við getum langt af stað til Þorlákshafnar.

Við erum að fara í Jómfrúarferð okkar á Þjóðhátíð í eyjum.

Pabba leist nú ekki á blikuna þegar hann vissi hversu mikið áfengi við ætluðum að taka með okkur

3 kippur af hálfslítra bjór og einasterkaflösku.

Erna spurði mig hvort ég væri að fara í Galtalæk.

.... þannig að ég bætti við einni tópasflösku.....

Ég verð fulla gellanní gula gallanum..........................

Góða skemmtunum helgina!!!!

:D

hringið í mig ef þið eruð í eyjum!!

Árný Rut :)


» 11 hafa sagt sína skoðun

25.07.2008 19:51:51 / árný

hubert er maðurinn!!

það eru allir orðnir langþreyttir á að bíða eftir bloggi f´ra mér og þar sem ég er að fara heim, ætli það sé þá ekki við hæfi að ég skrifi niður einhverjar setningar.

Eins og staðan er núna er ég að bíða eftir stelpunum, þær fóru í einhverju ævintýraferð til Vanlose að skrifa undir íbúðarsamning, voða fullorðnar, en ég babeið er bara heima, enda á ég 1 ár eftir í menntó.......... það er frekar vandræðalegt að segja fólki það hérna úti, því allir halda ég sé ca 23 ára...

En allavega, þá hefur margt drifið á daga okkar hér í köben, samt ekkert í raun frásögufæradni, því flest allt snýst þetta um djamm... og öllum finnst "had to be there" djammsögur ömulegar, þess vegna ætla ég bara að segja frá honum Hubert, eða Húbba, nafnið sem hann er þekktur undir hérna í "the Icelandic mansion"...

Húbbi er maður á besta aldri. Hann er semi fit, þ.e.a.s ekki feitur eins og nafnið gefur að kynna, heldur bara svona normal gæi. Hann á Strekers, pub og brasseria, þar sem ég og Nesa aka Agnes erum að vinna. Þetta er ekkert normal gaur. Ef þið haldið að þið hafið átt ömulegan yfirmann, þá get é geiginlega fullvissað ykkur um að þessi gaur toppar það... okei, Húbbi á það kanski ekki skilið, en hann er án efa einn sérkennilegasti og sérvitrasti gaur sem ég veit um - eins og nafnið gefur til kynna.

Hann virkaði í upphafi sem perri, því að hann svarar öllum spurningum með jaja og horfir rannsakandi á þig í leiðinni. En þegar ég komst að því að hann var bara ca þrítugur með gullfallega konu og tvösæt börn þá skipti ég um skoðun.. hann var bara skrýtinn.

Hann gerir sig eldri en hann í raun og veru er. Hann gengur um með gleraugu eins og amma þín á, svona flöskubotna, er með hárlubba og leyfir hárinu að vera gráu. Hann gengur um í gamaldagsfötum, en ég held að hann sé bara artý týpa- hlýtur eiginlega að vera því hann er svo ungur, vonandi.......hans vegna....

Jájá... eigum við að byrja að ræða hvað maðurinn er latur. Hann mætir alla daga klukkan hálf níu og er að skoða blöðin og drekka kaffi og borða crossant og eitthvað svona og lætur síðan staffið þrífa eftir sig. Eins gerir hann í hádeginu. Fær sér hamborgara og gengur ekki frá eftir sig. Verst er þó þegar hann kemur með litla strákinn sinn hann Hector í vinnuna, ohh boy.. þá er voðin vís. Það fer allt út um allt, því litli guttinn fær allt sem hann vill. Varm Cacao med flodeskum og síðan fær hann kók og crossant og súkkulaði mola. Litla dekraða kvikindi. Síðan tekru Hubbi Hector og staffið þarf að þrífa messið..

Hann stóð einu sinni við barinn og var að horfa yfir salinn og maður kemur til hans og spyr hann um salernið. Húbert sagði við manninn "Þú verður að spyrja eitthvað af ungafólkinu í skyrtunni" - what, hvað er málið það tekur jafnlangan tíma ef ekki lengri að segja þetta en bara að segja - toleted ligger ud til venstre.. man...

Síðan annað. Um daginn þá var ég við einn endann á barnum og Húbert við nær útgangum. Hann öskrar á mig "Árný" og ég öskra á móti "What" og þá segir hann lokaðu hurðinni...........

Í dag þegar ég mæti í vinnunna þá var Húbbi uppi á skrifstofur býður mér góðan dag, sem ég tók sem velvild, því hann segir aldrei neitt næs við mann:) en síðan fer hann að segja mér að kassarnir stemmi ekki eftir og séu oftar en ekki í mínus upp á mikla peninga. Ég segi bara ó, en leiðilegt. Þá heldur kallinn áfram: Do you calculate the money before you give back the change...
Ég sagðist nú halda það. Þá spyr hann mig: Are you good in math...?
Ég missti andlitið.
Niðurlæging... nei á Íslandi lærum við ekki mínus og plús, bara fleygboga og X föll

plaaaaaa.. hann drepur mig einn daginn.. og síðan í dag, þá rak hann einn.. áður en hann fór í hádegismat. Við erum að tala um það að ég er niðri í kjallara og Húbert öskrar "Árný, Árný" ég svara´"jájájá" - WHERE ARE YOU.... ég bara: ert að djóka "niðrí kjallara" - WHERE???? - In the basment!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
Hann biður mig að taka barinn meðan hann tala við Thor. Ég geri það. Stuttu seinna kemur Thor klæddur venjulega og segir bæ. Ég bara what why????? REKINN... fyrir hádegismatinn hans. Hann fékk ekki einu sinni pásu þann daginn.
hahaha.. og ég sem var alla vaktina að reyna manna mig upp í að soyrja Thor hvort hann væri hommi.l.. NOW I NEVER KNOW!!!!!!!!!!!

en að öðru, ég er að fara til eyja!!!!!!!!!!!!!!!!!!! júhú með Döggu!!!!!!!!!!!!!!!!! íhá...

kem heim 30. júlí, daddy cool keypti miða handa Árnýju sinni... eða lánaði, því það er búið að vera hart í ári hér í köben....

en allavega heyri í ykkur,

Árný

» 4 hafa sagt sína skoðun

25.06.2008 16:15:39 / árný

partý

Hej miner dejlige venner..

Her í Danmörku er allt svo mikið vesen. Í dag fengum við loksins ráðningasamning hjá barnum sem við erum að vinna hjá og ákvaðum þá að reyna að redda okkur skattkorti og kennitölu svo við gætum fengið útborgað. Í fyrsta lagi þá þurftum við að fara í Borgarakommunua, sem sagði okkur að við þyrftum að taka strætó upp á Sulluhólm eða eitthvað svona fáránlegt og kíkja í "SKAT" - málið er bara að það þarf að gerast fyrir klukkan 14:00 á daginn, því þá lokar, hentar alveg fólk sem er að vinna.......
Neinei, við getum ekki fengið skattkort nema vera með CPR númer sem er væntanlega einskonar kennitala svo við þurftum að tala við einhvern kall sem stamaði svo hræðilega að ég þurfti að halda niður í mér hlátrinum. Jamm og jæja, en þetta tekur 14 heila daga!!!!! Vááááá!!! þannig að ég og Agnes fáum ekki útborgað fyrr en eftir dúk og disk, frábært.

Annars er allt gott að frétta, draumaprinsinn minn er hérna út um allt! Allir danskir strákar eru svo fallegir að það skiptir ekki máli þó þú hættir að horfa á - THE ONE- því hinn - THE ONE- er bara rétt handan við hornið.
Vinnan gengur líka flott, komst að því að kvöldvaktin líður hraðar en morgunvaktin svo ég vil held ég vera bara sem oftast á næturvöktum, þó það þýði að maður missi af fjöri hérna heima :(

Aníta systir Rínu var hérna yfir helgina, og það var mjög fínt, skemmtum okkur stórvel, kíktum svolítið út á lífið, en bara smá samt ;)

Ég fór í FAKTA áðan sem er svona eins og kaupfélagið á Búðardal, nema þetta er lágvöruverslun.  Ég var send á hjólinu mínu með flöskur, sem hafa svona PANT, sem þýðir að þú færð endugreiddan dósapening.ég var eins og hálviti, þið getiið ímyndað ykkur tælenska konu eftir 17. júní eða slíkt og þá sjáiði mig, ég var með dósir og flöskur um allt hjól. Ég fer í þetta tæki sem er í FAKTA og fer að raða dósunum inn í tækið og svona en þegar ég er loksins búin að raða öllum dósunum inn þá snappar tækið og fer að pípa. Það var nú svo sem ekkert vandræðalegt fyrr en kellingin fyrir aftan mig fer að skamma mig og segja mér að ég þyrfti að laga þetta og gera eitthvað í þessu. Ég verð eins og kúkur og fer að leita aðstoðar hjá einmitt virkilega huggulegum strák. Síðan fórég að verlsa og svona, og fylli körfuna af snakki og nammi, þvi það er partý í kvöld hjá okkur og þegar kemur að því að borga þá vantar o,25 DKK, sem er 25 aura. Ég reyndi að fá að skila einum bjór, en það var ekki hægt og afgreiðslukonan var komin í hálfgert rusl þarna og farin að öskra annan starfskmann um hvað hún ætti eiginlega að gera. Mér var bjargað af bráðhuggulegum bauna, sem var að verlsa í matinn með konu sinni og skipaði henni að gefa mér 25 aura, þó svo að henni langaði ekki baun að gera það. Þegar ég var að raða í pokana heyrði ég að kelliningin var eitthvað að nöldra yfir þessu, en maður sagði bara við hana "heyrðu þetta voru bara 25 aurar og ég meikaði bara ekki að bíða meðan það var verið að leysa úr þessu" - ohh hetja !!

Þá var komið að því að hjóla heim. Ég er ekki beittasti hnífurinn í skúffunni og  setti klósett pappír öðrumegin að hjólið en 6 lítra af gosi hinu meginn. Þeir sem kunna basic í eðlisfræði ( Dagmar mín, það er í lagi ef þú nærð þesssu ekki ;) ) fatta það að sú stærðfræði gengur ekki alveg, þannig að ég var vaggandi allaleiðina hiem í umferðarörtröðinni í miðbæ Köben, var 2 næstum fyrir bíl, 2 fyrir hjóli og einu sinni fyrir strætó. Ég verð betri og betri í að hjóla með hverjum deginum...................

en Agnes er að reka á eftir mér, ég á að fara brjóta saman fötin mín - sumt breytist aldrei ;) ;) ekki satt mamma?

Ást og MVH Árný Rut

» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 14
Heimsóknir
Í dag:  62  Alls: 84002
Klukkan
Tan-freaks?
Könnun
Munum við "meikaða" í sólinni ?




Wannabees !!!!!!!!!!